Um okkur
Markmið okkar á tónleikum er að gera klassíska tónlist aðgengilega fyrir alla. Þessu markmiði reynum við að ná með því að blanda saman hefðbundnum flutningi á t.d. óperuaríum og með því að velja aríur eða söngleikjalög í léttari kantinum sem við útsetjum fyrir tríó og setjum saman í lagasyrpu og brjótum þannig upp hið hefðbundna flutningsform. Þessu fyrirkomulagi hefur verið vel tekið af áhorfendum
Fyrstu tónleika okkar héldum við í Seltjarnarneskirkju þann 17. september 2004 og fengu þær til liðs við sig tenórinn Gissur Pál Gissurarson. Tónleikarnir heppnuðust virkilega vel, fyrir nánast fullu húsi.
Síðan þá höfum við haldið tónleika bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi og einnig skotist til Noregs til að syngja. Stundum höfum við fengið til liðs við okkur gestasöngvara. Þeirra á meðal eru þeir Gissur Páll Gissurarson, tenór, Ari Jóhann Sigurðsson, tenór, Hrólfur Sæmundsson, baritón og
Bjarni Thor Kristinsson, bassi.
Einnig er vert að minnast á að við fengum tónskáldið Egil Gunnarsson til að útsetja nokkur jólalög fyrir okkur og eru þau alveg einstök.
Auk tónleikahalds hafa þær stöllur komið víða fram í brúðkaupum, árshátíðum og við ýmis önnur tilefni.